Framlög til okkar eru frádráttabær frá skatti

Með nýjum lögum sem voru samþykkt 1.nóvember 2021 geta velunnarar Körfuknattleikseild Tindastóls nú fengið endurgreiðslu frá skatti ef þeir styrkja félagið.

Einstaklingar geta því styrkt Körfuknattleiksdeild Tindastóls um allt að 350.000 kr en að lágmarki 10.000 kr á ári sem er frádráttarbært frá skattskyldum tekjum.

Dæmi: Einstaklingur sem greiðir 4.000 kr styrk til Körfuknattleiksdeild Tindastóls á mánuði fær skattaafslátt að fjárhæð 15.096 kr og greiðir þannig í raun 32.904 kr fyrir 48.000 kr styrk til félagsins

Nánar hér: RSK.IS

Fyrirtæki geta líka fengið skattaafslátt vegna styrkja. Fyrirtækjum er heimilt að draga frá skattstofni allt að 1,5% af rekstrartekjum.

Miðað er við algengustu skattprósentu lögaðila, þ.e. 20%.

Dæmi: Fyrirtæki sem styrkir Körfuknattleikseild Tindastóls um 500.000 kr getur lækkað tekjuskattinn sinn um 100.000 kr. Fyrirtækið greiðir þannig í raun 400.000 kr fyrir 500.000 kr styrk til Körfuknattleiksdeild Tindastóls.

Nánar hér: RSK.IS

Svona gengur ferlið fyrir sig.

Skráðu þig í Vildarvini Körfuknattleiksdeild Tindastóls. Þú velur upphæð og form og fjölda á greiðslu.